arnthor_gardars2

Arnþór Garðarsson

Náttúrufræðingurinn, 1.-4. hefti, 79. árgangur, 2010 er kominn út.
 Hann er að þessu sinni helgaður Arnþóri Garðarssyni,
 prófessor, en hann varð sjötugur þann 6. júlí 2008. Arnþór var fyrsti stjórnarformaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn og hóf talningar á fuglum og 
mýfluguum sem enn eru stundaðar af kappi á Mývatni. Rannsóknir hans á fuglalífi
 Mývatns þróuðust brátt í rannsóknir á flestum stofnum vatnaskordýra og andastofna, ásamt
 reglubundnum mælingum á ýmsum umhverfisbreytingum. Í þessu hefti eru margar áhugaverðar 
greinar, og þrjár þeirra snerta náttúru Mývatnssveitar sérstaklega. Þær 
eru: Fæðuvefur Mývatns eftir Árna Einarsson, Mýframleiðsla og fæðuvefur
 Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu eftir Gísla Má Gíslason og
 Af rjúpum og fálkum eftir Ólaf Karl Nielsen.